Skógarlíf

Frumskógurinn vaknar til lífsins á aðventunni. 

Við fylgjumst með magnaðri þroskasögu og ævintýrum Móglí, sem elst upp meðal dýra í frumskóginum.

Skógarlíf er glæný leikgerð eftir Gretu Clough sem unnið hefur til alþjóðlegra verðlauna bæði sem leikskáld og sviðslistamaður. 

Leikgerðin er byggð á the Jungle Book eftir Rudyard Kipling.

Það er okkur í Leikflokk Húnaþings vestra sönn ánægja að kynna heimsfrumsýningu á þessu verki í Félagsheimilinu á Hvammstanga dagana 13. 14. – 15. desember. 

ATH að það verður sett upp aukasýning þann 20. desember kl 19.

Áhorfendur fá að kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum sögupersónum, tónlist og hönnun undir indverskum áhrifum í framsetningu fjölbreytts og hæfileikaríks hóps fólks úr Húnaþingi vestra. Þetta er ævintýri sem þið megið alls ekki missa af!

KAUPA MIÐA